01.08.18 - 08:15
Arnar Daði Arnarsson
Hanna Barker lánuð í ÍR (Staðfest)

Barker í leik með FH í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Barker í leik með FH í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Neðsta lið Pepsi-deildar kvenna FH, hefur lánað sóknarmanninn, Hanna Marie Barker til ÍR í Inkasso-deildinni.
Hanna spilaði 12 leiki með FH í Pepsi-deildinni í sumar og skoraði eitt mark.
Hanna spilaði 12 leiki með FH í Pepsi-deildinni í sumar og skoraði eitt mark.
ÍR er í harðri fallbaráttu í Inkasso-deildinni í fallsæti með 8 stig, jafn mörg stig og Afturelding/Fram sem er í sætinu fyrir ofan á markahlutfalli. Afturelding/Fram á þó tvo leiki inni til góða.
ÍR á sjö leiki eftir af tímabilinu en liðið leikur gegn botnliði Sindra í kvöld á Hornafirði.
Hanna er lögleg með ÍR í leiknum í kvöld og gæti því spilað sinn fyrsta leik fyrir félagið á Hornafirði í kvöld.