Fotbolti.net
01.08.18 - 11:15
Ívan Guðjón Baldursson

Hilmar Rafn og Hilmar Trausti í Hauka (Staðfest)

Hilmar Rafn í leik með Haukum sumarið 2014.

Hilmar Rafn í leik með Haukum sumarið 2014.

Canon

Mynd: Ívar Atli Sigurjónsson

Aðstoðarþjálfarar Hauka í Inkasso-deildinni, þeir Hilmar Rafn Emilsson og Hilmar Trausti Arnarsson hafa fengið félagaskipti yfir í Hauka og eru því löglegir með liðinu.

Hilmar Rafn lék fimm leiki og skoraði eitt mark með Augnablik á tímabilinu en hann hefur undanfarin ár leikið með ÍH og Álftanes í neðri deildum eftir að hafa spilað með Haukum ellefu tímabil í röð frá árinu 2004.

Hann á að baki 187 meistaraflokks leki á ferlinum og skorað í þeim 76 mörk.
Hilmar Trausti gengur til liðs við Hauka frá KA en þar lék hann sumrin 2015 og 2016 í Inkasso-deildinni en seinni parts sumars tímabilið 2016 var hann lánaður til ÍH.

Hilmar Trausti á að baki 225 meistaraflokks leiki á ferlinum og skorað í þeim 30 mörk.

Haukar fengu einnig Gylfa Stein Guðmundsson til baka til sín úr láni frá ÍH.

Haukar er í mikilli fallbaráttu í Inkasso-deildinni með 13 stig, tveimur stigum meira en Selfoss sem er með 11 stig í næst neðsta sæti deildarinnar. Haukar taka á móti ÍA á heimavelli í kvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.