01.08.18 - 12:30
Arnar Daði Arnarsson
Hjalti Hermann aftur í Vestra (Staðfest)

Hjalti í leik gegn Aftureldingu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hjalti í leik gegn Aftureldingu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vesti í 2. deildinni hefur fengið Hjalta Hermann Gíslason aftur til sín eftir lánsdvöl hjá Herði frá Ísafirði í 4. deildinni.
Hann lék 10 leiki með Herði í 4. deildinni í sumar og skoraði sex mörk. Hjalti á alls 54 meistaraflokksleiki á bakinu og hefur skorað í þeim leikjum 20 mörk.

Hann lék fjórtán leiki með Vestra í 2. deildinni í fyrra en snemma í sumar var hann lánaður til Harðar.
Vestri er í 5. sæti 2. deildarinnar með 24 stig aðeins þremur stigum frá sæti í Inkasso-deildinni. Þeir taka á móti Völsungi á heimavelli í kvöld klukkan 18:00 en Völsungur er á toppi deildarinnar.