Fotbolti.net
01.08.18 - 10:45
Arnar Daði Arnarsson

Keflvíkingar fá tvo leikmenn (Staðfest)

Helgi Þór fagnar einu af mörkum sínum fyrir Njarðvík í sumar.

Helgi Þór fagnar einu af mörkum sínum fyrir Njarðvík í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Keflvíkingar fengu til sín tvo nýja leikmenn rétt áður en félagaskiptaglugginn lokaði um miðnætti.

Þeir fengu varnarmanninn unga, Aron Kára Aðalsteinsson á láni frá Breiðabliki en Aron Kári sem er 19 ára var fyrri hluta móts á láni hjá ÍR í Inkasso-deildinni og lék þar fjóra leiki.
Síðan fengu þeir einnig framherjann, Helga Þór Jónsson frá grönnum sinum í Njarðvík.

Helgi Þór sem er uppalinn hjá Víði í Garði skipti yfir til Njarðvíkur fyrir tímabilið og skoraði hann þrjú mörk í 13 leikjum fyrir þá grænklæddu í deildinni í sumar.

Keflavík er á botni Pepsi-deildarinnar með þrjú stig eftir fjórtán leiki en liðið mætir Fjölni í næstu umferð á miðvikudaginn 8. ágúst.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.