01.08.18 - 06:00
Arnar Daði Arnarsson
Kjartan Sturlu í KH (Staðfest)

Kjartan í landsleik árið 2008.

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Kjartan í landsleik árið 2008.

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Fyrrum landsliðsmarkvörðurinn, Kjartan Sturluson hefur fengið félagaskipti yfir í KH frá Val.
Kjartan lék síðast með Val sumarið 2010 þegar hann lék alla leiki félagsins í efstu deild það árið. Hann á samtals 326 meistaraflokksleiki að baki á ferlinum og sjö A-landsleiki.

Kjartan er ekki nema 43 ára að aldri en hann er jafn gamall og Gunnleifur Gunnleifsson markvörður Breiðabliks í Pepsi-deildinni.
KH er í harðri toppbaráttu í 3. deildinni en liðið situr í 2. sæti deildarinnar með 23 stig þegar sex umferðir eru eftir af mótinu.
KH mætir KFG í toppbaráttuslag föstudaginn 10. ágúst.