01.08.18 - 11:24
Elvar Geir Magnússon
Liverpool lánar Woodburn til Sheff Utd (Staðfest)

Woodburn í baráttunni.

Mynd: Getty Images

Woodburn í baráttunni.

Mynd: Getty Images
Ein helsta vonarstjarna Liverpool, hinn 18 ára Ben Woodburn, hefur verið lánaður til Sheffield United til að fá reglulegan spiltíma.
„Það er frábært fyrir okkur að fá Ben. Hann er spennandi leikmaður með mikla hæfileika,\" segir Chris Wilder, stjóri United.
„Ég er ánægður með að þeir treysti okkur fyrir einum allra efnilegasta leikmanni sínum. Táningi sem er farinn að spila fyrir aðallið Wales.\"
„Þetta er í fyrsta sinn sem hann fer á lán og ég er viss um að það muni hagnast öllum aðilum. Hann býr til mörk og skorar með báðum fótum og gefur okkar nýja möguleika á toppnum.\"
Woodburn á ellefu leiki fyrir Liverpool en hans fyrsti leikur var gegn Sunderland í nóvember 2016. Hann varð yngsti markaskorari Liverpool frá upphafi þegar hann skoraði gegn Leeds í deildabikarnum, 17 ára og 45 daga gamall. Hann á sjö landsleiki fyrir Wales.
Sheffield United hafnaði í 10. sæti Championship-deildarinnar á síðasta tímabili og hefur nýtt tímabil með leik gegn Swansea á laugardag.

⚔️📝 NEW BOY | @BenWoodburn talks exclusively to @SUFC_tweets
— Sheffield United (@SUFC_tweets) August 1, 2018
See https://t.co/MXpVc9Jhrn for his first interview as a Blade 🔴⚪️⚫️⚔️ #twitterblades #ForgedinSteel #sufc pic.twitter.com/dQppRHHu1j