Fotbolti.net
01.08.18 - 09:16
Elvar Geir Magnússon

Lucas Digne til Everton (Staðfest)

Digne skrifar undir.

Digne skrifar undir.

Canon

Mynd: Everton

Bakvörðurinn sókndjarfi Lucas Digne, 25 ára, er orðinn liðsfélagi Gylfa Þórs Sigurðssonar hjá Everton. Digne kemur frá Barcelona og skrifar undir samning við Everton til 2023.

Hann hefur orðið Frakklandsmeistari með PSG og Spánarmeistari með Barcelona. Þá var hann lykilmaður hjá Roma þegar liðið komst í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar 2016 og á 21 landsleik fyrir Frakkland.

Hann var á varalista franska landsliðsins fyrir HM í Rússlandi.
„Ég vil spila leiki, vinna leiki og gleðja stuðningsmenn með gæðafótbolta. Ég hef þróast mikið sem leikmaður og persóna við það að spila með bestu leikmönnum í heimi,\" segir Digne.

„Ég vil sýna minn besta fótbolta hér og kynnast bestu deild í heimi. Allir elska ensku úrvalsdeildina og ég elska þá staðreynd að ég sé að fara að spila í henni.\"

„Ég er ekki hræddur heldur spenntur. Þetta er ný áskorun, kynnast nýju landi, deild, fólki og frábæru félagi eins og Everton. Þetta er yndislegt.\"

Talið er að kaupverð Everton á Digne sé 18 milljónir punda.

🔵🔴Thanks for the last two years @LucasDigne! pic.twitter.com/Xc92L9Y4X6

— FC Barcelona (@FCBarcelona) August 1, 2018
Lucas Digne til Everton (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.