01.08.18 - 15:30
Arnar Daði Arnarsson
Nadía aftur í FH (Staðfest)

Nadía er komin aftur í FH.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Nadía er komin aftur í FH.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Botnlið FH í Pepsi-deild kvenna hefur kallað Nadíu Atladóttur aftur til baka úr láni frá Fjölni í 1. deildinni.
Nadía lék 14 leiki með Fjölni í deild og bikar í sumar og skoraði í þeim leikjum sjö mörk.

Nadía sem er uppalin í Haukum lék 12 leiki með FH í Pepsi-deildinni í fyrra án þess að skora en þessi 19 ára sóknarmaður lék þrjá leiki með FH sumarið 2016.
FH hefur nú fengið hana til baka úr láni og vonast til að hún geti hjálpað liðinu í þeirri fallbaráttu sem liðið er í, í deildinni.
FH er með sex stig á botninum, en KR og Grindavík eru í sætunum fyrir ofan liðið með níu stig.
FH mætir Selfossi í næstu umferð á fimmtudaginn eftir viku.