Fotbolti.net
01.08.18 - 10:30
Arnar Daði Arnarsson

Páll Sindri í ÍA (Staðfest)

Páll Sindri fagnar marki Kára í sumar.

Páll Sindri fagnar marki Kára í sumar.

Canon

Mynd: Kári

Miðjumaðurinn, Páll Sindri Einarsson hefur gengið til liðs við ÍA í Inkasso-deildinni frá Kára úr 3. deildinni.

Páll Sindri hefur farið hamförum í 3. deildinni með Kára sem er í toppbaráttunni þar og skorað átta mörk í 14 leikjum í deidinni í sumar.
Páll Sindri sem er 26 ára hóf meistaraflokks feril sinn hjá KF í 2. deildinni sumarið 2012. Hann hefur auk þess leikið með Grundarfirði og Tindastól.

Hann er löglegur með Skagamönnum í kvöld þegar liðið heimsækir Hauka heim klukkan 18:30 í Hafnarfirðinum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.