Fotbolti.net
01.08.19 - 09:45
Arnar Daði Arnarsson

Alli Murphy í Selfoss (Staðfest)

Selfoss liðið hefur bætt við sig miðjumanni.

Selfoss liðið hefur bætt við sig miðjumanni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Sel­foss hef­ur samið við banda­ríska miðju­mann­inn Alli Murp­hy og mun hún klára tíma­bilið með liðinu Pepsi Max-deild­inni. Þetta kem­ur fram í frétta­til­kynn­ingu frá fé­lag­inu.
Murp­hy, sem er 25 ára göm­ul, kem­ur til Sel­foss frá PEC Zwolle í hollensku úr­vals­deild­inni og fór meðal ann­ars með hol­lenska liðinu í bikar­úr­slit í vor.

Hún hef­ur einnig spilað í sænsku B-deild­inni og verið á mála hjá Hou­st­on Dash og Washingt­on Spi­rit í banda­rísku at­vinnu­manna­deild­inni. Hún var val­in tutt­ug­asta í nýliðaval­inu til Washingt­on árið 2016 en hún spilaði með sterku liði Texas Tech í há­skóla­bolt­an­um og var fyr­irliði liðsins.

„Þetta er spenn­andi leikmaður, vinnu­söm og fjöl­hæf með góða yf­ir­sýn á vell­in­um. Hún er með góða reynslu og fær mjög góð meðmæli og á eft­ir að styrkja okk­ur á loka­sprett­in­um. Við hlökk­um til að sjá hana í Sel­foss­bún­ingn­um,“ seg­ir Al­freð Elías Jó­hanns­son, þjálf­ari Sel­foss í sam­tali við heimasíðu fé­lags­ins.

Selfoss er í 4. sæti Pepsi Max-deildarinnar með 19 stig eftir 12 umferðir og þá er liðið komið í úrslit Mjólkurbikarsins þar sem liðið mætir KR á Laugardalsvellinum, 17. ágúst næstkomandi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.