01.08.19 - 09:35
Elvar Geir Magnússon
Arnar Grétars tekur við þjálfun Roeselare (Staðfest)

Arnar Grétarsson.

Mynd: Roeselare

Arnar Grétarsson.

Mynd: Roeselare
Arnar Grétarsson hefur verið ráðinn þjálfari Roeselare en liðið leikur í belgísku B-deildinni.
Í vikunni var greint frá því að hann væri að fara að taka við sem yfirmaður íþróttamála hjá félaginu en svo reyndist ekki vera. Hann er orðinn aðalþjálfari liðsins.
Samningur Arnars er til eins árs en nú eru tveir íslenskir þjálfarar í belgísku B-deildinni. Stefán Gíslason tók við Lommel fyrr í sumar. Keppni í deildinni hefst á morgun.
Roeselare á fyrsta deildarleik á sunnudag en aðstoðarþjálfarinn David Colpaert stýrir þeim leik og Arnar mun fylgjast með í stúkunni. Arnar mun svo taka alfarið við stjórnartaumunum á mánudag.

Arnar átti frábæran knattspyrnuferil en hann lék með Breiðabliki, AEK í Grikklandi, Lokeren í Belgíu og Leiftri en auk þess lék hann 71 landsleik fyrir Ísland.
Hann var yfirmaður knattspyrnumála hjá AEK frá 2010-2012 og hjá Club Brugge frá 2013 til 2014. Hann var þá síðast þjálfari Breiðabliks frá 2015-2017.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð