Fotbolti.net
01.08.19 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Birmingham fær markvörð frá Real Madrid (Staðfest)

Birmingham fær markvörð frá Real Madrid (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Birmingham er búið að fá hinn 19 ára gamla Moha Ramos frá Real Madrid. Birmingham fær hann á láni og er með forkaupsrétt á honum næsta sumar.
Ramos er markvörður sem fer í U23 liðið hjá Birmingham, en félagið lítur á hann sem mjög efnilegan leikmann í sinni stöðu.

Hann er níundi leikmaðurinn sem Birmingham fær til sín í þessum félagaskiptaglugga.

Á síðasta tímabili hafnaði Birmingham í 17. sæti Championship-deildarinnar. Garry Monk var rekinn fyrr í sumar og hefur enginn stjóri verið ráðinn til framtíðar þegar þessi frétt er skrifuð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.