Fotbolti.net
01.08.19 - 12:20
Elvar Geir Magnússon

Danjuma til Bournemouth (Staðfest)

Arnaut Danjuma.

Arnaut Danjuma.

Canon

Mynd: Getty Images

Bournemouth hefur fengið sinn fjórða leikmann í sumar en hollenski landsliðsvængmaðurinn Arnaut Danjuma er kominn frá Club Brugge.

Áður hafði Eddie Howe náð í Lloyd Kelly, Jack Stacey og Philip Biling.
Danjuma kom upp úr unglingastarfi PSV Eindhoven áður en hann fór til Hollands.

„Það er gott skref fyrir mig að koma til Bournemouth. Enska úrvalsdeildin er magnaður staður til að spila fótbolta í. Ég tel að leikstíll Bournemouth henti mér vel, ég vil sækja og get ekki beðið eftir að byrja," segir hinn 22 ára Danjuma.

Stuðningsmenn Bournemouth fagna því að fá styrk í sóknarleikinn en David Brooks verður frá í allt að þrjá mánuði vegna ökklameiðsla.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.