01.08.19 - 10:15
Arnar Daði Arnarsson
Grindavík kallar Nemanja til baka (Staðfest)

Nemanja Latinovic í leik með Grindavík í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir

Bakvörðurinn, Nemanja Latinovic hefur verið kallaður til baka í Grindavík eftir að hafa verið lánaður í 4. deildarlið GG fyrr í sumar.
Nemanja er fæddur árið 1995 og lék 15 leiki með Grindavík í Pepsi deildinni síðasta sumar, auk þess að spila einn leik í Mjólkurbikarnum.

Hann hefur spilað tíu leiki með GG í 4. deildinni í sumar og skorað fimm mörk en GG er á toppi síns riðsils í 4. deildinni.
Nemanja lék sinn fyrsta leik með Grindavík sumarið 2014 en hefur í heildina spilað 26 leiki með félaginu og skorað í þeim leikjum tvö mörk.
Nú er ljóst að Nemanja tekur þátt í baráttu Grindavíkur í Pepsi Max-deildinni út tímabilið.