01.08.19 - 15:00
Elvar Geir Magnússon
Kasey Palmer til Bristol City (Staðfest)

Kasey Palmer á æfingu með Chelsea.

Mynd: Getty Images

Kasey Palmer á æfingu með Chelsea.

Mynd: Getty Images
Bristol City í Championship-deildinni hefur keypt miðjumanninn Kasey Palmer frá Chelsea á 3,5 milljónir punda.
Þessi 22 ára leikmaður var á láni hjá Bristol á síðasta tímabili og lék þá sautján leiki.
Bristol er duglegt að sækja leikmenn til Chelsea en hjá félaginu eru Jay Dasilva og Tomas Kalas.
Þessi 22 ára leikmaður var á láni hjá Bristol á síðasta tímabili og lék þá sautján leiki.
Bristol er duglegt að sækja leikmenn til Chelsea en hjá félaginu eru Jay Dasilva og Tomas Kalas.
Annar ungur leikmaður yfirgaf Chelsea í dag og fór í Championship-deildina. Hinn 19 ára Dujon Sterling var lánaður til Wigan en á síðasta tímabili var hann á láni hjá Coventry í C-deildinni.
