Fotbolti.net
01.08.19 - 16:30
Arnar Daði Arnarsson

Maggi Bö skiptir um félag (Staðfest)

Maggi Bö við störf.

Maggi Bö við störf.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Magnús Valur Böðvarsson, þekktasti vallarstjóri landsins, sagði skilið við Kópavoginn fyrr í sumar og er orðinn vallarstjóri hjá KR. Nú hefur hann hinsvegar einnig ákveðið að skipta um félag sem knattspyrnumaður.

Maggi Bö hefur gert félagaskipti yfir í Álafoss í 4. deildinni en hann lék síðast með Geisla í 4. deildinni síðasta sumar og tvo leiki með Geisla tímabilið 2017. Þetta tilkynnti hann á Twitter síðu sinni í gærkvöldi.


Maggi á 69 meistaraflokksleiki að baki og hefur hann skorað í þeim leikjum sex mörk. Allt saman mjög táknrænt.

Auk Geisla hefur hann spilað með KFK, Álftanesi, Ými og Drangi.

Álafoss er í 4. sæti C-riðils 4. deildar með 16 stig en þrír leikir eru eftir af riðlinum. Það þarf margt að ganga upp svo liðið komist í úrslitakeppnina, en það er greinilegt að liðið ætlar að treysta á töfra Magga Bö til að reyna komast í úrslitakeppnina í ár.
Maggi Bö skiptir um félag (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.