Fotbolti.net
01.08.19 - 15:43
Elvar Geir Magnússon

Nicolas Pepe til Arsenal (Staðfest)

Nicolas Pepe er mættur í treyju Arsenal.

Nicolas Pepe er mættur í treyju Arsenal.

Canon

Mynd: Arsenal

Nicolas Pepe hefur verið keyptur til Arsenal fyrir 72 milljónir punda. Þessi 24 ára leikmaður hefur skrifað undir fimm ára samning.

Fílabeinsstrendingurinn kemur frá Lille og er dýrasti leikmaður Arsenal í sögu félagsins.
„Nicolas er í miklum metum og er hæfileikaríkur vængmaður sem mörg stórlið í Evrópu vildu fá. Það var eitt helsta markmið okkar í sumar að fá alvöru vængmann og ég er í skýjunum með að hann sé að koma," segir Unai Emery, stjóri Arsenal.

„Hann kemur með hraða, kraft og sköpunarmátt og vonandi færir hann liðinu fleiri mörk."

Nicolas Pepe hafði þetta að segja:

„Það er mjög tilfinningaþrungið að vera hér því þetta hefur ekki verið auðvelt fyrir mig. Ég hef komið langan veg og gengið í gegnum ýmislegt. Að semja við þetta frábæra félag er stór viðurkenning," sagði Pepe.

Hann er fjórði leikmaðurinn sem Arsenal fær í sumar. Félagið fékk Dani Ceballos frá Real Madrid á láni, Gabriel Martinelli og William Saliba. Saliba fór beint aftur á lán til St-Etienne.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.