01.08.19 - 14:30
Arnar Daði Arnarsson
Patrik Snær í Hauka (Staðfest)

Patrik Snær er kominn í Hauka.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Patrik Snær er kominn í Hauka.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sóknarmaðurinn, Patrik Snær Atlason er genginn í raðir Hauka en hann hefur leikið með KÁ í 4. deildinni í sumar. KÁ er varalið Hauka sem stofnað var fyrir tímabilið.
Patrik hefur skorað fimm mörk í tíu leikjum fyrir KÁ í sumar en hann skoraði til að mynda eitt mark í 2-1 tapi gegn Víkingi R. í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins.

Patrik Snær hefur skorað 25 mörk í 82 meistaraflokksleikjum á sínum ferli en hann hefur leikið með Víkingi R., Víði, ÍR, KÁ og Njarðvík.
Þá gekk Fannar Óli Friðleifsson einnig í raðir Hauka frá KÁ. Hann hefur skorað fjögur mörk í átta leikjum í 4. deildinni í sumar en í fyrra leik hann með ÍH og Álftanesi.
Haukar er í mikilli fallbaráttu í Inkasso-deildinni með 14 stig, jafn mörg stig og Afturelding í 9. og 10. sæti deildarinnar. Njarðvík og Magni eru í fallsætunum með 10 stig bæði lið.