Fotbolti.net
01.08.19 - 14:06
Elvar Geir Magnússon
Ítalska deildin

Rafael Leao til AC Milan (Staðfest)

Rafael Leao.

Rafael Leao.

Canon

Mynd: Getty Images

AC Milan hefur keypt portúgalska U21-landsliðsmanninn Rafael Leao frá Lille á 35 milljónir evra.

Sóknarmaðurinn gerir fimm ára samning.
Þessi tvítugi leikmaður braut sér leið inn í aðallið Lille á síðasta tímabili og skoraði átta mörk þegar hann hjálpaði liðinu að taka annað sætið í frönsku deildinni.

Leao fyllir skarð Patrick Cutrone sem gekk í raðir Wolverhampton Wanderers í vikunni og er þriðji leikmaðurinn sem AC Milan kaupir í sumar, á eftir Rade Krunic og Theo Hernandez.

Fjórði leikmaðurinn verður væntanlega brasilíski varnarmaðurinn Leo Duarte sem er líklega á leið frá Flamengo.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.