Fotbolti.net
01.08.19 - 11:30
Arnar Daði Arnarsson

Stefán Þór í Aftureldingu (Staðfest)

Stefán Þór í leik með í ÍR í fyrra.

Stefán Þór í leik með í ÍR í fyrra.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Afturelding hefur samið við Stefán Þór Pálsson um að spila með liðinu út tímabilið. Stefán Þór kemur til liðsins frá Víkingi Ólafsvík.

Stefán, sem er 23 ára gamall, er fjölhæfur leikmaður sem getur bæði spilað frammi og á miðjunni. Hann hefur komið við sögu í fimm leikjum með Víkingi í Inkasso-deildinni í sumar.
Í fyrra lék hann með ÍR en hann hefur einnig spilað með Breiðabliki, KA, Víkingi R. og Grindavík. Þá á hann 29 leiki að baki fyrir yngri landslið Íslands.

Afturelding gerði 1-1 jafntefli gegn Fjölni í 15. umferð Inkasso-deildarinnar í gærkvöldi en liðið er í mikilli fallbaráttu. Koma Stefáns til liðsins er því góð viðbót við hópinn hjá Aftureldingu.

Afturelding er með 14 stig í 10. sæti deildarinnar, jafn mörg stig og Haukar sem eru í 9. sæti. Í fallsætunum eru Njarðvík og Magni með tíu stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.