Fotbolti.net
01.08.19 - 09:16
Arnar Daði Arnarsson

Stjarnan kallar Elís Rafn til baka (Staðfest)

Elís Rafn er kominn aftur í Stjörnuna.

Elís Rafn er kominn aftur í Stjörnuna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan hefur kallað Elís Rafn Björnsson til baka úr láni en hann var lánaður til Fjölnis í Inkasso-deildinni í byrjun sumars. Elís Rafn sem gekk í raðir Stjörnunnar frá Fylki í vetur hefur komið við sögu í níu leikjum með Fjölni í sumar.

Elís Rafn fékk tækifæri með Stjörnunni í Mjólkurbikarnum fyrr í sumar en var síðan lánaður í kjölfarið.
Nú er ljóst að hann verður með Stjörnunni í Pepsi Max-deildinni út tímabilið en einhver meiðsli eru í leikmannahópi Stjörnunnar þessa dagana. Liðið mætir Espanyol í seinni leik liðanna í forkeppni Evrópudeildarinnar á Samsung-vellinum í kvöld. Fyrri leikurinn endaði með 4-0 sigri Espanyol.

Þetta er mikið áfall fyrir Fjölni sem trónir á toppi Inkasso-deildarinnar með 33 stig eftir 15 umferðir.

Stjarnan er í 4. sæti Pepsi Max-deildarinnar með 21 stig í harðri Evrópubaráttu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.