Fotbolti.net
01.08.19 - 09:02
Elvar Geir Magnússon

Tom Heaton til Aston Villa (Staðfest)

Heaton hress og kátur.

Heaton hress og kátur.

Canon

Mynd: Aston Villa

Aston Villa hefur keypt markvörðinn reynslumikla Tom Heaton af Burnley á níu milljónir punda. Þessi 33 ára leikmaður átti ár eftir af samningi við Burnley og því ákvað félagið að selja hann núna.

Heaton hefur verið hjá Burnley síðan 2013 en er nú kominn til nýliða ensku úrvalsdeildarinnar.

Aston Villa hefur verið ansi duglegt á leikmannamarkaðnum síðustu vikur en Birkir Bjarnason er hjá félaginu.
Heaton hefur leikið frábærlega fyrir Burnley og var í enska landsliðshópnum í úrslitakeppni Þjóðadeildarinnar í sumar.

Enska úrvalsdeildin fer af stað eftir rúma viku.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.