01.08.19 - 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Toni Duggan til Atletico (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Enska landsliðskonan Toni Duggan hefur skrifað undir tveggja ára samning við spænsku meistarana í Atletico Madrid.
Hin 27 ára gamla Duggan kemur til Atletico frá Barcelona þar sem hún skoraði 29 mörk í 72 leikjum á tveimur árum.
„Ég er mjög ánægð að spila með Atletico. Þetta er félag sem styður vel við kvennalið sitt og starfsliðið hér er mjög gott," sagði Duggan er hún skrifaði undir.
Duggan var hluti af enska landsliðinu sem komst í undanúrslitin á HM kvenna í sumar.
Duggan var í sex ár hjá Everton og fjögur ár hjá Manchester City áður en hún fór til Spánar.