Fotbolti.net
01.08.19 - 09:22
Arnar Daði Arnarsson

Valur kallar Stefaníu til baka (Staðfest)

Stefanía Ragnarsdóttir.

Stefanía Ragnarsdóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Kvennaboltinn
Topplið Vals í Pepsi Max-deild kvenna hefur kallað miðjumanninn, Stefaníu Ragnarsdóttur til baka úr láni frá Fylki.

Stefanía var lánuð til Fylkis í upphafi sumars en hún hefur komið við sögu í fjórtán leikjum með Fylki í Pepsi Max-deildinni og Mjólkurbikarnum í sumar.
Stefanía hefur skorað eitt mark í sumar og það kom í gærkvöldi í 3-2 sigri Fylkis á ÍBV en þetta var þriðji sigurleikur Fylkis í röð í deildinni sem er komið með 16 stig og situr í 5. sæti deildarinnar en ekki er langt síðan liðið var í fallsæti.

Hún er upp­al­in hjá Þrótti Reykja­vík en hún á að baki 41 leik í efstu deild fyr­ir Val og Fylki þar sem hún hef­ur skorað fimm mörk.

Nú er ljóst að hún mun taka þátt í titilbaráttunni með Val út tímabilið en Valur og Breiðablik eru með jafn mörg stig á toppi deildarinnar þegar sex umferðir eru eftir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.