01.08.19 - 09:10
Arnar Daði Arnarsson
Viktor Unnar í KV (Staðfest)

Viktor Unnar fagnar marki sínu með Kórdrengjum í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Viktor Unnar Illugason hefur gert félagaskipti yfir í KV frá Kórdrengjum en bæði lið leika í 3. deildinni.
Viktor Unnar hefur komið við sögu í 12 leikjum með Kórdrengjum í sumar og skorað í þeim tvö mörk. Hann hefur leikið með félaginu síðustu þrjú tímabil.

KV er í 3. sæti 3. deildarinnar með 29 stig, sex stigum á eftir KF en Kórdrengir eru efstir með 38 stig og aðeins tapað einum leik í deildinni.
KV fékk einnig til sín Björn Axel Guðjónsson frá Gróttu en hann hefur komið við sögu í sjö leikjum með Gróttu í sumar í Inkasso-deildinni og Mjólkurbikarnum. Hann skoraði tvö mörk í Mjólkurbikarnum fyrir Gróttu í sumar.
Þá gekk Magnús Otti Benediktsson einnig í raðir KV frá Ými en hann lék með Ými í 4. deildinni síðasta sumar en hefur ekkert leikið í sumar.