01.08.19 - 18:36
Ívan Guðjón Baldursson
Watford fær 20 milljónir fyrir Lukebakio (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Watford er búið að belgíska framherjann Dodi Lukebakio til Hertha Berlin. Þýska félagið greiðir 20 milljónir punda fyrir, en Lukebakio spilaði aðeins 15 mínútur fyrir Watford frá komu sinni til félagsins.
Lukebakio var keyptur til Watford í lok janúar 2018 og fékk aðeins að spila í 15 mínútur sem varamaður út tímabilið. Yfir sumarið var hann síðan lánaður til Fortuna Düsseldorf og þar gekk honum vel.
Lukebakio skoraði 14 mörk í 34 leikjum hjá Düsseldorf og vakti mikla athygli, sérstaklega með þrennu sem hann skoraði í 3-3 jafntefli gegn Bayern München í nóvember. Hann er eini leikmaðurinn til að skora þrennu gegn Manuel Neuer í þýsku deildinni.
Lukebakio var lykilmaður í U21 landsliði Belga þar sem hann skoraði fjögur mörk í sautján leikjum. Hann getur leikið á báðum köntum og í fremstu víglínu.