Mainoo opinn fyrir Napoli - Tekur Gerrard við Boro? - Forest vill 120 milljónir punda - Kröfur Vinicius gætu ýtt honum í burtu
   lau 01. ágúst 2020 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía í dag - Markahæstu liðin mætast í úrslitaleik
Fimm leikir fara fram í lokaumferð ítölsku deildarinnar í dag og kvöld. Þrír stórleikir eru á dagskrá og verða tveir þeirra sýndir í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og Sport 3.

Dagurinn hefst á viðureign Brescia og Sampdoria á Stöð 2 Sport 3. Birkir Bjarnason lék þrettán deildarleiki fyrir Brescia frá komu sinni í janúar en hefur verið utan hóps síðustu tvo leiki.

Í kvöld mætast Atalanta og Inter í úrslitaleik um annað sæti. Geri liðin jafntefli getur Lazio stolið öðru sætinu með sigri í stórleik gegn Napoli.

Inter er í öðru sæti sem stendur, einu stigi fyrir ofan Lazio og Atalanta. Inter og Atalanta eru þau lið sem hafa skorað flest mörk á deildartímabilinu. Atalanta er komið með 98 mörk og Inter með 79.

Ítalíumeistarar Juventus taka á móti Roma á sama tíma og þá á Milan leik við Cagliari.

Leikir dagsins:
16:00 Brescia - Sampdoria (Stöð 2 Sport 3)
18:45 Juventus - Roma (Stöð 2 Sport)
18:45 Atalanta - Inter (Stöð 2 Sport 3)
18:45 Napoli - Lazio
18:45 AC Milan - Cagliari
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 11 8 0 3 26 12 +14 24
2 Roma 11 8 0 3 12 5 +7 24
3 Milan 11 6 4 1 17 9 +8 22
4 Napoli 11 7 1 3 16 10 +6 22
5 Bologna 11 6 3 2 18 8 +10 21
6 Juventus 11 5 4 2 14 10 +4 19
7 Como 11 4 6 1 12 6 +6 18
8 Sassuolo 11 5 1 5 14 12 +2 16
9 Lazio 11 4 3 4 13 9 +4 15
10 Udinese 11 4 3 4 12 17 -5 15
11 Cremonese 11 3 5 3 12 13 -1 14
12 Torino 11 3 5 3 10 16 -6 14
13 Atalanta 11 2 7 2 13 11 +2 13
14 Cagliari 11 2 4 5 9 14 -5 10
15 Lecce 11 2 4 5 8 14 -6 10
16 Pisa 11 1 6 4 8 14 -6 9
17 Parma 11 1 5 5 7 14 -7 8
18 Genoa 11 1 4 6 8 16 -8 7
19 Verona 11 0 6 5 6 16 -10 6
20 Fiorentina 11 0 5 6 9 18 -9 5
Athugasemdir
banner