Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 01. ágúst 2021 14:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Fletcher sannfærði Varane um að koma til United
Mynd: EPA
Real Madrid og Manchester United hafa náð samkomulagi um að Raphael Varane gangi til liðs við United. Búist er við því að félagsskiptin gangi í gegn í næstu viku.

Varane átti aðeins eitt ár eftir af samningnum sínum við Real og hann hafði neitað að skrifa undir nýjan samning svo það var ekkert annað í stöðunni fyrir félagið en að selja hann.

Hann var lengi orðaður við United en sögur segja að Chelsea og PSG hafi reynt að stela honum af United á síðustu stundu.

Hann hafi hinsvegar verið sannfærður um að ganga til liðs við United eftir samtal sem hann átti við Darren Fletcher fyrrum leikmann United og nú í þjálfarateymi liðsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner