Fotbolti.net
01.09.19 - 09:25
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Barca lánar Miranda til Schalke (Staðfest)

Barca lánar Miranda til Schalke (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Vinstri bakvörður í eigu Barcelona, Juan Miranda, verður hjá Schalke í Bundesliga næstu tvö tímabilin.

Miranda er 19 ára og er talinn gífurlega efnilegur. Juventus var á höttunum á eftir leikmanninum en Barcelona ákvað að lána hann til Þýskalands í stað þess að missa hann til Juve.
Miranda hefur leikið með Barca í bæði Konungsbikarnum sem og Meistaradeildinni en hann var á eftir Jordi Alba og Junior Firpo í goggunarröðinni.

Miranda verður í treyju númer þrjú hjá Schalke. Miranda varð í sumar Evrópumeistari með U19 ára liði Spánar og árið 2017 varð hann Evrópumeistari með U17.

David Wagner, fyrrum stjóri Huddersfield, er stjóri Schalke. Liðið vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu í gær þegar liðið lagði Herthu frá Berlin, 3-0.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.