01.09.19 - 10:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Cagliari fær Simeone á láni frá Fiorentina (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Cagliari hefur fengið mikinn liðsstyrk fyrir komandi átök í Seria A. Liðið klófesti í gærkvöldi Giovanni Simeone á láni frá Fiorentina.
Gio Simeone er sonur Diego Simeone stjóra Atletico Madrid.
Cagliari er skyldugt til að kaupa Simeone þegar lánssamningurinn rennur út næsta sumar og þarf að greiða 16 milljónir evra fyrir framherjann.

Simeone var þokkalega heitur hjá þeim fjólubláu á þarsíðustu leiktíð og skoraði þá 14 mörk í deildinni. Á síðustu leiktíð kólnaði hann og skoraði aðeins sex mörk í 36 leikjum.
Kevin-Prince Boateng og Dusan Vlahovic voru á undan í goggunarröðinni hjá Fiorentina.
Leonardo Pavoletti er illa meiddur hjá Cagliari og á Simeone að fylla í skarðið hjá framherjanum sem skoraði 18 mörk á síðustu leiktíð.
Gio er 24 ára og fæddist í Madrid en á fimm landsleiki fyrir Argentínu og hefur gert eitt landsliðsmark. Simeone gæti leikið sinn fyrsta leik fyrir Cagliari í kvöld gegn Inter, klukkan 18:45.