01.09.19 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Defour leystur undan samningi hjá Burnley (Staðfest)

Defour í leik með Burnley.

Mynd: Getty Images

Defour í leik með Burnley.

Mynd: Getty Images
Burnley og Steven Defour hafa komist að samkomulagi um að miðjumaðurinn verði leystur undan samningi.
Enska úrvalsdeildarfélagið segir að Defour sé á leið aftur til Belgíu af fjölskylduástæðum.
Defour átti eftir 10 mánuði af samningi sínum hjá Burnley. Hann kom til félagsins frá Anderlecht sumarið 2016.
Defour, sem er 31 árs, lék 51 leik á þremur árum hjá Burnley og skoraði hann tvö mörk. Hann hefur átt í basli með meiðsli.
Jóhann Berg Guðmundsson var liðsfélagi Defour hjá Burnley.