01.09.19 - 15:53
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Mónakó fær Jean-Kevin Augustin frá RB Leipzig (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Jean-Kevin Augustin er genginn í raðir Mónakó frá RB Leipzig. Augustin kemur á láni til Mónakó.
Hinn 22 ára Augustin hefur skorað 20 mörk og lagt upp átta í 67 leikjum hjá Lepzig.
Mónakó getur keypt framherjann á um 20 milljónir evra næsta sumar.

Augustin kom til Leipzig frá PSG árið 2017 en hjá PSG spilaði hann 23 deildarleiki og skoraði tvö mörk. Hann á að baki níu U21 árs landsleiki fyrir Frakkland.
Framherjinn hafði ekkert verið með Leipzig í upphafi leiktíðar en Leipzig er á toppi þýsku deildarinnar. Þessar fréttir renna stoðum undir þær sögusagnir að Radamel Falcao sé á leið í burtu frá Mónakó en Galatasaray er sagt hafa áhuga á Falcao.