Fotbolti.net
01.09.19 - 11:50
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Nice kaupir Nsoki frá PSG (Staðfest)

Tomas Tuchel fór yfir hlutina með Nsoki í sumar.

Tomas Tuchel fór yfir hlutina með Nsoki í sumar.

Canon

Mynd: Getty Images

Nice hefur staðfest komu Stanley Nsoki til liðsins. Varnarmaðurinn kemur frá Frakklandsmeisturum PSG og kostar Nice um 11 milljónir punda.

Nsoki er 20 ára örvfættur varnarmaður sem getur leyst bæði miðvörð og bakvörð.

Nsoki á þrettán unglingalandsliðsleiki fyrir Frakkland.
Nsoki lék sinn fyrsta leik í Ligue 1 árið 2017, þá einungis 18 ára, þegar hann lék gegn Caen í 3-1 sigri PSG.

Tomas Tuchel, stjóri PSG, notaði Nsoki einungis í 14 leikjum á síðustu leiktíð og leitar varnarmaðurinn á ný mið í leit að meiri spiltíma.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.