01.10.17 - 13:42
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kjartan og Sigurður taka við Fylki (Staðfest)

Kjartan Stefánsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Kjartan Stefánsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fylkir var að senda frá sér fréttatilkynningu þar sem tilkynnt er að Kjartan Stefánsson og Sigurður Þór Reynisson munu stýra kvennaliði Fylkis næstu þrjú árin. Þeir taka við liðinu af Hermanni Hreiðarssyni sem stýrði liðinu seinni hlutann á tímabilinu sem var að klárast.
Fylkir mun spila í 1. deild kvenna næsta sumar eftir að hafa fallið úr Pepsi-deildinni á þessu tímabili.

„Kjartan Stefánsson er öllum hnútum kunnugur í Árbænum en hann hefur þjálfað flest alla flokka hjá Fylki, yngri flokka drengja og stúlkna og meistaraflokk kvenna á sl. 20 árum, en lét nýverið af störfum sem þjálfari hjá Haukum þar sem þjálfaði meistaraflokk kvenna hjá félaginu sl. tvö ár,\" segir í tilkynningu Fylkis.
Sigurður Þór Reynisson verður Kjartani til aðstoðar, en hann, líkt og Kjartan, þekkir einnig vel til félagsins og hefur, þrátt fyrir ungan aldur, þjálfað lengi hjá Fylki, bæði drengi og stúlkur, auk þess sem hann æfði og spilaði með félaginu upp alla flokka.\"
„Hermann Hreiðarsson lætur því nú af störfum sem þjálfari meistaraflokks kvenna, en hann hefur þjálfað liðið sl. mánuði, ásamt Kristbjörgu Ingadóttur og Sigurði Þór. Knattspyrnudeild Fylkis vill koma á framfæri þökkum til þeirra allra fyrir gott starf. Hermann kom inn í starfið á tímum þar sem liðið var í erfiðri stöðu og er starfsfólk og stjórn félagsins afar þakklát Hermanni fyrir að hafa stigið inn og þakkar honum sérstaklega fyrir það, frábær samskipti, góð vinnubrögð og góðmennsku í garð félagsins. Fótboltinn væri fátækari án manna eins og Hermanns.\"
Hjá Fylki ríkir ánægja með ráðninguna.
„Kjartan og Siggi þekkja Fylki betur en flestir og fá nú góðan tíma til að móta lið. Liðið okkar samanstendur af góðum og fjölmennum hóp ungra og efnilegra stelpna, auk þess sem þar leynast nokkrir eldri reynsluboltar. Með ráðningu þessara þjálfara þá vitum við að hlúð verður vel að yngri leikmönnum, leikmenn munu fá góða kennslu og þjálfun og því spennandi tímar framundan í Árbænum,\" segir Halldór Steinsson í meistaraflokksráði kvenna hjá Fylki.
„Það er gott að vera kominn aftur í Fylki, þarna þekki ég vel til og hefur alltaf liðið vel í Árbænum. Að fá að starfa aftur með Sigga er spennandi en við þekkjum vel til hvors annars og höfum þjálfað saman áður. Fylkisliðið er að mestu skipað ungum leikmönnum og það verður spennandi að vinna með þeim. Markmið okkar er að hlúa vel að okkar leikmönnum og að viðhalda áfram frábærri umgjörð í kringum liðið,\" segir Kjartan Stefánsson nýráðinn þjálfari Fylkis.
Fylkir nýtti líka tækifærið og gerði nýja samninga við nokkra af leikmönnum sínum. Leikmennirnir sem um ræðir eru Berglind Rós Ágústsdóttir, Hulda Hrund Arnarsdóttir, Ída Marín Hermannsdóttir, Kristín Þóra Birgisdóttir, Ragnheiður Erla Garðarsdóttir og Thelma Lóa Hermannsdóttir.

Sigurður Þór Reynisson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð