Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   þri 01. október 2019 12:40
Magnús Már Einarsson
Emil Ásmunds: Það verður eitthvað sparkað í mann
Emil Ásmundsson.
Emil Ásmundsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
„Mér finnst þetta vera rétta skrefið á þessum tíma fyrir minn feril. Hver vill ekki spila fyrir Íslandsmeistarana og Rúnar Kristinsson? Ég mat það þannig að ég gæti bætt mig undir stjórn Rúnars hjá KR," sagði Emil Ásmundsson, nýr leikmaður KR, við Fótbolta.net í dag.

„Ég hlakka mikið til og þetta verður vonandi skemmtileg ævintýri á mínum ferli. Ég get ekki beðið eftir að byrja."

Emil hefur spilað með uppeldisfélagi sínu Fylki allan ferilinn fyrir utan þrjú ár hja Brighton í Englandi. Hann segir erfitt að kveðja Fylki.

„Þetta er erfitt. Ég hef verið þarna síðan ég var gutti fyrir utan stutt stopp í Englandi. Mér þykir mjög vænt um Fylki og það var erfitt að segja skilið við þá," sagði Emil sem mætir Fylki næsta sumar.

„Það verður tilbreyting og hörkuleikur. Það verður örugglega eitthvað reynt að stuða mann og félagarnir í Fylki eiga eftir að sparka eitthvað í mann."

Ekki klárt fyrr en (Staðfest) kemur
Nýjar reglur tóku gildi á Íslandi í fyrra en félög mega nú hefja viðræður við leikmenn sex mánuðum áður en þeir renna út af samningi. Fótbolti.net greindi frá því í júlí að KR vildi fá Emil.

„Þið greinduð frá þessu frekar snemma. Þið voruð með puttann á púlsinum frá degi eitt," sagði Emil við Fótbolta.net í dag en fólk spurði hann talsvert út í félagaskiptin í sumar og hvort að það væri rétt að hann væri á leið í KR.

„Þetta var ekki klárt fyrr en (Staðfest) kemur. Ég svaraði alltaf að þetta myndi koma í ljós."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner