Fotbolti.net
01.10.22 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Fótboltamaður handtekinn vegna mótmæla í Íran

Mahini er til hægri á myndinni.

Mahini er til hægri á myndinni.

Canon

Mynd: EPA

Það ríkir mikil ólga í Íran þessa dagana þar sem íslamska ríkið sem er við stjórn í landinu berst við að halda mótmælum almennings niðri.

Ríkisstjórnin tók internetið af þegnum landsins í vikunni og hafa margir verið særðir eða fangelsaðir í mótmælunum á meðan einhverjir hafa látist. 

Fótboltamenn hafa staðið upp og sýnt fólkinu í landinu stuðning en þeir eiga núna í hættu á að vera álitnir óvinir ríkisins. Til dæmis var húsi Ali Karimi, einni af helstu goðsgönum í fótboltasögu Íran, snúið á hvolf, á meðan fótboltamaðurinn Hossein Mahini var handtekinn ásamt fréttamanninum Niloufar Hamedi.

Þá hefur vakið mikla reiði í landinu að söngvarinn Shervin Hajipour var handtekinn fyrir að hafa sýnt mótmælendum stuðning.

Mahini, fótboltamaðurinn sem var handtekinn, er 36 ára gamall fyrrum landsliðsmaður.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.