30.09.26 - 19:53
Ívan Guðjón Baldursson
Heiða Ragney og María Catharína áfram í næstu umferð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Heiða Ragney Viðarsdóttir var í byrjunarliði Eskilstuna sem rúllaði yfir Örebro í úrslitaleik um sæti í riðlakeppni sænska bikarsins.
Eskilstuna, sem er um miðja efstu deild með 27 stig eftir 20 umferðir, skoraði sjö mörk á útivelli til að tryggja sér sætið. Örebro leikur í næstefstu deild og er í neðri hlutanum þar, sex stigum frá fallsæti.
María Catharína Ólafsdóttir Grós byrjaði þá á bekknum er Djurgården lagði Älvsjö, lokatölur 1-4.
Örebro 0 - 7 Eskilstuna
Alvsjö 1 - 4 Djurgarden
María Catharína Ólafsdóttir Grós byrjaði þá á bekknum er Djurgården lagði Älvsjö, lokatölur 1-4.
Örebro 0 - 7 Eskilstuna
Alvsjö 1 - 4 Djurgarden
