Fotbolti.net
01.11.16 - 11:54
Elvar Geir Magnússon
Ítalska deildin

De Boer rekinn (Staðfest) - Pioli tekur líklega við

Stefano Pioli er að taka við Inter.

Stefano Pioli er að taka við Inter.

Canon

Mynd: Getty Images

Internazionale á Ítalíu hefur staðfest það að Hollendingurinn Frank de Boer hefur verið leystur frá störfum sem þjálfari liðsins. De Boer staldraði stutt við hjá Inter en hann var ráðinn í ágúst en er rekinn eftir að hafa tapað sjö af fjórtán leikjum við stjórnvölinn.

Stefano Vecchi, þjálfari unglingaliðs Inter, verður við stjórnvölinn þegar Inter ferðast til Southampton í Evrópudeildarleik á fimmtudaginn.
Inter hafnaði í fjórða sæti ítölsku A-deildarinnar á síðasta tímabili og er sem stendur í því tólfta.

„Inter vill þakka Frank og hans starfsliði fyrir vinnuna með félaginu síðustu mánuði og óskar þeim alls hins besta í framtíðinni. Frekari yfirlýsinga um þjálfaramálin er að vænta,\" segir í tilkynningu Inter.

Stefano Pioli hefur snúið aftur til Ítalíu eftir frí í Bandaríkjunum en samkvæmt Sky á Ítalíu er hann efstur á blaði Inter sem næsti þjálfari.

Í apríl á þessu ári var Pioli, sem er 51 árs, rekinn sem þjálfari Lazio en þar á undan stýrði hann meðal annars Bologna og Parma.
Frank De Boer er atvinnulaus.

Frank De Boer er atvinnulaus.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.