01.11.16 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Jón Stefán aðstoðar Úlf hjá Val (Staðfest)

Mynd: .

Mynd: .

Jón Stefán Jónsson kemur inn í þjálfarateymi Vals í Pepsi-deild kvenna sem aðstoðarþjálfari.
Jón Stefán verður aðstoðarmaður Úlfs Blandon sem tók við Val af Ólafi Brynjólfssyni á dögunum.
Jón Stefán verður aðstoðarmaður Úlfs Blandon sem tók við Val af Ólafi Brynjólfssyni á dögunum.
„Valur er risastórt félag á Íslandi, sagan segir það. Mikil hefð er fyrir kvennaknattspyrnu í félaginu og krafan á árangur er skýr. Mér finnst mikill heiður að vera treyst fyrir þjálfun í þessum flokkum hjá Val og lít á þetta sem virkilega spennandi tækifæri,\" sagði Jón Stefán.
Jón Stefán mun einnig þjálfa 3 og 2. flokk kvenna hjá Val.
Í sumar þjálfað Jón Stefán lið KF í 2. deild karla en í fyrra var hann þjálfari hjá Dalvík/Reyni. Hann hefur einnig þjálfað yngri flokka hjá Þór sem og meistaraflokk kvenna hjá Haukum.