Fotbolti.net
01.11.16 - 10:54
Magnús Már Einarsson

Óli Brynjólfs nýr aðstoðarþjálfari Fram (Staðfest)

Óli Brynjólfs nýr aðstoðarþjálfari Fram (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Ólafur Brynjólfsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari Fram en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.

Ólafur verður hægri hönd Ásmundar Arnarssonar þjálfara á næsta tímabili.

Undanfarin tvö tímabil hefur Ólafur þjálfað kvennalið Vals en ljóst varð á dögunum að hann myndi ekki halda áfram þar.
„Fleiri félög en Fram voru að reyna að ná í þennan hæfa þjálfara til sín en Ólafur ákvað að taka slaginn með Fram,\" segir á heimasíðu Fram.

Ólafur er 41 árs en hann þjálfaði meistaraflokk karla hjá Gróttu í tvö ár áður en hann tók við kvennaliði Vals.

Fram endaði í 6. sæti í Inkasso-deildinni á nýliðnu tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.