01.11.18 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Eva Rut í HK/Víking (Staðfest)

Eva Rut Ásþórsdóttir í leik með Aftureldingu/Fram

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Eva Rut Ásþórsdóttir í leik með Aftureldingu/Fram

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

HK/Víkingur hefur styrkt sig fyrir komandi átök í Pepsi-deild kvenna en Eva Rut Ásþórsdóttir er komin til félagsins frá Aftureldingu/Fram.
Eva Rut, sem er fædd árið 2001, á 34 leiki að baki með bæði Aftureldingu og sameinuðu liði Aftureldingar og Fram.
Hún hefur þá spilað átta leiki fyrir yngri landslið Íslands, bæði U17 og U19.
Hún er nú búin að fá félagaskipti yfir í HK/Víking en liðið hafnaði í 7. sæti Pepsi-deildar kvenna á síðasta tímabili.
Hún hefur þá spilað átta leiki fyrir yngri landslið Íslands, bæði U17 og U19.
Hún er nú búin að fá félagaskipti yfir í HK/Víking en liðið hafnaði í 7. sæti Pepsi-deildar kvenna á síðasta tímabili.
