01.11.18 - 16:38
Ingólfur Páll Ingólfsson
Óttar Bjarni gengur í raðir ÍA (Staðfest)

Óttar Bjarni við undirskriftina.

Mynd: Knattspyrnufélag ÍA

Óttar Bjarni við undirskriftina.

Mynd: Knattspyrnufélag ÍA
Óttar Bjarni Guðmundsson er genginn í raðir Knattspyrnufélags ÍA.
ÍA vann Inkasso-deildina á liðnu tímabili og leikur í Pepsi-deildinni á næsta tímabili.

Óttar Bjarni sem er fæddur árið 1990, ólst upp í Breiðholti hjá Leikni Reykjavík. Hann kemur til ÍA frá Stjörnunni þar sem hann hefur verið frá árinu 2016.
Óttar spilar sem varnarmaður og segist Jóhannes Karl, þjálfari meistaraflokks félagsins, mjög spenntur fyrir þeirri viðbót sem Óttar er í leikmannahópi liðsins.
Óttar er mikilvæg viðbót við lið ÍA sem spilar í Pepsi deildinni næsta sumar. Óttar hefur spilað rúmlega 200 leiki á ferli sínum, þar af 9 leiki síðasta sumar í Pepsi deildinni með Stjörnunni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð