01.12.12 - 17:31
Matthías Freyr Matthíasson
Jan Mikael Berg til ÍA (staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir

Úrvalsdeildarlið ÍA í knattspyrnu karla tilkynnti í dag um að þeir hefðu gengið frá tveggja ára samningi við Jan Mikael Berg sem er finnskur bakvörður. Þetta var tilkynnt á heimasíðu félagsins rétt í þessu.
Jan Mikael Berg er fæddur árið 1985 og er því 27 ára gamall. Hann er annar leikmaðurinn sem skagamenn fá til liðs við sig í vetur. En þeir fengu framherjann Þórð Birgisson fyrr í vetur.
Jan Mikael var á reynslu hjá Skagaliðinu um miðjan nóvember mánuð þar sem hann æfði með liðinu í um vikutíma og lék einn æfingaleik með liðinu gegn Stjörnunni og þótti standa sig vel.
,,Við erum mjög ánægðir með að hafa fengið Jan til liðs við okkur. Hann býr yfir talsverðri leikreynslu en hann hefur allan sinn feril leikið með liðum í efstu og næst efstu deild í Finnlandi og á einnig að baki leiki með unglingalandsliðum Finna. Hann var á reynslu hjá okkur um miðjan nóvember mánuð og stóð sig mjög vel. Hann mun koma til móts við okkur í byrjun janúar og byrja þá að æfa með okkur að nýju en hann mun styrkja okkar mannskap og auka í senn breiddina í leikmannahópnum sem er bara jákvætt.\" Sagði Þórður Guðjónsson framkvæmdastjóri KFÍA í stuttu samtali við vefsíðu félagsins.

Heimild: Heimasíða KFÍA