Fotbolti.net
15.11.26 - 14:57
Brynjar Ingi Erluson

Ásdís og Ída skoruðu í lokaumferðinni - Thelma lagði upp þegar Häcken fagnaði titlinum

Thelma lagði upp í lokaumferðinni

Thelma lagði upp í lokaumferðinni

Canon

Mynd: Guðmundur Svansson

Kvennaboltinn
Thelma Karen Pálmadóttir tryggði sér sænska meistaratitilinn með Häcken á dögunum og var honum fagnað eftir 2-0 sigur liðsins á Piteå í lokaumferðinni í dag.
Häcken tryggði sér sænska meistaratitilinn með 4-1 sigri á Kristianstad þann 2. nóvember, en leikmenn liðsins gátu loksins fagnað almennilega eftir lokaumferðina í dag.

Thelma var að sjálfsögðu í byrjunarliði meistaranna og lagði upp fyrra markið fyrir Maju Bodin í upphafi síðari hálfleiks.

Thelma átti glæsilegt tímabil með Häcken og lauk deildarkeppninni með sex mörk og sjö stoðsendingar.

Ída Marín Hermannsdóttir hefur einnig farið á kostum undanfarna mánuði, en hún gekk til liðs við Hammarby frá FH í ágúst.

Hún skoraði sigurmark Hammarby í 1-0 sigri á Kristianstad í dag og var það hennar fimmta mark í aðeins átta deildarleikjum.

Guðrún Arnardóttir var einnig í byrjunarliði Hammarby sem hafnaði í öðru sæti deildarinnar með 65 stig. Hjá Kristianstad voru Guðný Árnadóttir og Alexandra Jóhannsdóttir í byrjunarliðinu, en Elísa Lana Sigurjónsdóttir kom inn af bekknum.

María Catharina Ólafsdóttir Gros var í byrjunarliði Djurgården sem marði 1-0 sigur á Eskilstuna. Freyja Stefánsdóttir sat allan leikinn á varamannabekknum, en Heiða Ragney Viðarsdóttir kom inn á hjá Eskilstuna.

Djurgården endaði í áttunda sæti með 34 stig, aðeins einu stigi á undan Eskilstuna sem hafnaði í níunda sæti.

Hlín Eiríksdóttir var í byrjunarliði Malmö sem gerði 1-1 jafntefli við Vittsjö og lauk tímabilinu í þriðja sæti með 48 stig.

Þá skoraði Ásdís Karen Halldórsdóttir fyrir AIK í 1-1 jafntefli gegn Norrköping. Mark hennar kom úr vítaspyrnu á fjórðu mínútu í uppbótartíma en Norrköping jafnaði rúmri mínútu síðar.

Ásdís var að gera áttunda mark sitt en hún gerði einnig tvær stoðsendingar á tímabilinu eftir að hafa komið frá FH í haust.

Sigdís Eva Bárðardóttir kom inn af bekknum hjá Norrköping þegar tuttugu mínútur voru eftir.

Norrköping náði naumlega að halda sæti sínu í deildinni með 28 stig, en AIK hafnaði í fjórða sæti með 44 stig.
Ída Marín skoraði fimm mörk í átta deildarleikjum

Ída Marín skoraði fimm mörk í átta deildarleikjum

Canon

Mynd: Hammarby

Ásdís skoraði fyrir AIK en alls gerði hún átta mörk og lagði upp tvö síðan hún kom frá FH

Ásdís skoraði fyrir AIK en alls gerði hún átta mörk og lagði upp tvö síðan hún kom frá FH

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.