Fotbolti.net
01.12.12 - 11:22
Hafliði Breiðfjörð

Magnús Már Lúðvíksson í Val (Staðfest)

Magnús Már ásamt Magnúsi Gylfasyni þjálfara.

Magnús Már ásamt Magnúsi Gylfasyni þjálfara.

Canon

Mynd: Valur.is

Magnús Már Lúðvíksson skrifaði í dag undir tveggja ára samning við Val en hann kemur til félagsins frá KR þar sem hann hefur verið undanfarin tvö ár.

Hann er að snúa aftur til Vals því þar lék hann áður árið 2002 í 1. deildinni. Þá spilaði hann 17 leiki í deild og bikar og skoraði í þeim níu mörk.
Um síðustu helgi spilaði Magnús Már 80 mínútur með Val í 3-2 tapi gegn Þrótti í Bose bikarnum.

Þessi 31 árs gamli hægri bakvörður skoraði eitt mark í þrettán leikjum í Pepsi-deildinni í sumar en hann var að berjast við Hauk Heiðar Hauksson um sæti í liði KR.

Magnús er uppalinn í KR en hann hefur einnig leikið með Fjölni, Drang, Val, ÍBV, Þrótti og Hödd í Noregi á ferli sínum.

Magnús Már er annar leikmaðurinn sem Valur fær til liðs við sig á sólarhring því í gær gekk Björgólfur Takefusa til liðs við félagið. Þeir hafa áður fengið til sín Fjalar Þorgeirsson úr KR, Sigurð Egil Lárusson úr Víkingi, Arnar Svein Geirsson úr Víkingi Ólafsvík, Edvard Börk Óttharsson úr Tindastóli og Ingólf Sigurðsson úr Lyngby.

Magnús Gylfason þjálfar mikið breytt lið Vals á næstu leiktíð en hann tók við af Kristjáni Guðmundssyni. Níu leikmenn eru farnir frá síðustu leiktíð, Atli Sveinn Þórarinsson í KA og auk hans þeir Atli Heimisson, Ásgeir Þór Ingólfsson, Brynjar Kristmundsson, Halldór Kristinn Halldórsson, Hilmar Rafn Emilsson, Joe Tillen, Sindri Snær Jensson og Hörður Sveinsson.

Heimild: Vefur Vals

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.