Fotbolti.net
01.12.16 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Gus Poyet tekur við liði í Kína (Staðfest)

Poyet er mættur í kínversku ofurdeildina

Poyet er mættur í kínversku ofurdeildina

Canon

Mynd: Getty Images

Gus Poyet, fyrrum stjóri Real Betis og Sunderland, er tekinn við liði Shanghai Shenhua í kínversku ofurdeildinni. Þetta staðfesti félagið á þriðjudaginn.

Tímabilinu í Kína var að ljúka, en Shanghai Shenhua lenti í fjórða sæti deildarinnar á nýliðnu tímabili.
Hann tekur við starfi þjálfara hjá Shanghai Shenhua af Spánverjanum Gregorio Manzano eftir að ákveðið var að semja ekki við hann aftur.

Poyet var síðast á mála hjá Real Betis í spænsku úrvalsdeildinni, en hann var rekinn þaðan eftir aðeins fjóra mánuði í starfi.

Hann hefur á þjálfaraferli sínum einnig þjálfað lið eins og Brighton, Sunderland og AEK frá Aþenu.

Heimild: ESPN

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.