01.12.16 - 11:14
Magnús Már Einarsson
Kristín Erna og Adriana í ÍBV (Staðfest)
Cloe, Shaneka og Sóley áfram

Kristín Erna í leik með ÍBV.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Cloe Lacasse verður áfram hjá ÍBV.

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Kristín Erna í leik með ÍBV.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristín Erna Sigurlásdóttir hefur gengið til liðs við sitt gamla félag ÍBV á nýjan leik eftir að hafa leikið með Fylki á síðasta tímabili.
Kristín hefur leikið 125 leiki fyrir ÍBV og skorað í þeim 84 mörk. Í efstu deild hefur Kristín leikið með ÍBV 73 leiki og skorað í þeim 33 mörk. Þá hefur Kristín leikið 9 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands og skorað í þeim 5 mörk. Kristín á einnig að baki einn landsleik með U-23 ára landsliðinu.

Þá hefur ÍBV samið við Adrienne Jordan sem kemur frá Östersund í Svíþjóð. Adrienne getur leikið bæði sem bakvörður og kantmaður.
Cloe Lacasse leikmaður ársins hjá ÍBV 2016 hefur ákveðið að framlengja samning sinn við félagið. Cloe sem hefur leikið frábærlega fyrir ÍBV mun snúa aftur til Eyja í byrjun febrúar. Cloe hefur leikið 41 leik fyrir ÍBV og gert í þeim 25 mörk ásamt því að hún hefur verið arkitektin af mörgum mörkum ÍBV síðustu tvö leiktímabil.
Framherjinn öflugi Shaneka Gordon verður einnig áfram í herbúðum ÍBV. Shaneka hefur verið mesti markaskorari ÍBV undanfarin ár en hún missti af síðasta tímabli vegna meiðsla. Shaneka er að ná sér af meiðslunum en hún mun hefja æfingar af fullum krafti í janúar.
Sóley Guðmundsdóttir, fyrirliði ÍBV, hefur einnig ákveðið að framlengja samning sinn við félagið en Sóley hefur leikið 148 leiki fyrir ÍBV og skorað í þeim 7 mörk. Þá á Sóley að baki 7 leiki með Unglingalandsliðum Íslands og skorað í þeim 1 mark.
Áður hafði Sigríður Lára Garðarsdóttir samið við sitt uppeldisfélag en Sigríður hefur leikið 126 leiki fyrir ÍBV og skorað í þeim 21 mark. Þá hefur Sigríður leikið 29 leiki fyrir yngri landslið Íslands og skorað í þeim 5 mörk. Sigríður hefur einnig leikið einn landsleik með U-23 ára landsliðinu og einn leik með A-landsliðinu.

Sóley Guðmundsdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Shaneka Gordon.