01.12.16 - 11:00
Magnús Már Einarsson
Páll Guðlaugs tekur við liði í Noregi (Staðfest)

Páll Guðlaugsson.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Þjálfarinn reyndi Páll Guðlaugsson hefur tekið við liði Alvdal í norsku E-deildinni.
Í ár þjálfaði Páll lið B68 í Færeyjum en hann lét af störfum eftir tímabilið. Hann er nú mættur til starfa í Noregi.
„Ég er ánægður með þetta því það hefur alltaf verið draumur að verða þjálfari í Noregi,\" sagði Páll við ostlendingen.no.
Alvdal fékk einungis fimm stig í norsku D-deildinni á nýliðnu tímabili og leikur því í E-deildinni að ári.
Páll þjálfaði Leiftur og Keflavík á árum áður sem og Fjarðabyggð árin 2009 og 2010. Páll hefur einnig þjálfað færeyska landsliðið og mörg félög í Færeyjum á þjálfaraferlinum.