01.12.16 - 22:27
Ívan Guðjón Baldursson
Sigurbergur framlengir við Keflavík (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sigurbergur Elísson er búinn að framlengja samning sinn við Keflavík til ársins 2018.
Sigurbergur er 24 ára gamall miðjumaður sem hefur leikið fyrir Keflavík alla sína tíð. Hann á yfir 50 leiki að baki fyrir félagið í Pepsi-deildinni.

Sigurbergur var lykilmaður fyrir Keflvíkinga í Inkasso-deildinni síðasta sumar þar sem hann skoraði sjö mörk í nítján deildarleikjum.
Knattspyrnudeild Keflavíkur vildi gera allt í sínu valdi til að halda Sigurbergi innan félagsins, enda í lykilhlutverki í áformum félagsins um að komast aftur upp í Pepsi-deildina.
Sigurbergur er eftirsóttur og hefur verið orðaður við Pepsi-deildarfélög undanfarna mánuði en hefur nú bundið enda á alla orðrómana.