Fotbolti.net
01.12.16 - 16:30
Elvar Geir Magnússon

Sigurður Hrannar í Aftureldingu (Staðfest)

Sigurður Hrannar í Aftureldingu (Staðfest)
Canon

Mynd: Mosfellingur - Raggi Óla

Afturelding í Mosfellsbæ hefur fengið til sín markvörðinn Sigurð Hrannar Björnsson frá Víkingi Reykjavík.

Bjarni Þórður Halldórsson og Bergsteinn Magnússon sem vörðu mark Aftureldingar í sumar eru horfnir á braut en Bjarni er kominn aftur í Fylki.

Afturelding hafnaði í þriðja sæti 2. deildar í sumar og tókst því ekki að komast upp.
Sigurður var í láni hjá Hetti og Fram á liðnu tímabili.

Wentzel Steinarr Ragnarsson Kamban, fyrirliði, og Magnús Már Einarsson hafa einnig skrifað undir nýjan eins árs samning við Aftureldingu og eru með Sigurði á meðfylgjandi mynd.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.